20. október 2023
20. október 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
Brot 134 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 16. október til fimmtudagsins 19. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 21.287 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.