Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

Brot 104 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 9. október til fimmtudagsins 12. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega þremur sólarhringum fóru 19.669 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.