Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

Brot 152 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 8. júní til mánudagsins 12. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega fjórum sólarhringum fóru 28.540 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.