22. maí 2023
22. maí 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
Brot 112 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 19. maí til mánudagsins 22. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 22.239 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.