Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. maí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

Brot 125 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 8. maí til fimmtudagsins 11. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 28.156 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.