Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Breiðhöfða í Reykjavík

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Breiðhöfða í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðhöfða í suðurátt, við Dverghöfða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 182 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Breiðhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.