Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Borgavegi í Reykjavík

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 223 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.