Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. nóvember 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Borgavegi í Reykjavík

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, að Sóleyjarima. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.