Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Borgarholtsbraut í Kópavogi

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 52. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.