Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Borgarholtsbraut í Kópavogi

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, að Skólagerði. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.