Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. febrúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Barónsstíg í Reykjavík

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðurátt, að Fjölnisvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.