Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. september 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Barónsstíg í Reykjavík

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, á móts við Austurbæjarskóla. Á hálfri klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 42.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.