Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. júní 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarhálsi í Reykjavík

Brot 84 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, á móts við Orkuveitu Reykjavíkur. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 424 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.