Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 36-40% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 66-69 km/klst.