Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 31 ökumanns var myndað á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í suðurátt, frá Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 74.

Eftirlit lögreglunnar á Bæjarbraut var tilkomið vegna ábendinga frá bæjaryfirvöldum en kvartað hefur verið undan hraðakstri á þessum stað.