Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í norðurátt, sunnan Arnarnesvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 175 ökutæki þessa akstursleið og því ók nálægt helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.

Eftirlit lögreglunnar á Bæjarbraut var tilkomið vegna ábendinga frá bæjaryfirvöldum en kvartað hefur verið undan hraðakstri á þessum stað.