Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í vesturátt, við Löngumýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.