Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. júní 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 31 ökumanns var myndað á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 116 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.