Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.