Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. október 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Bæjarbraut í Garðabæ

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í vesturátt, vestan Karlabrautar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 181 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut, en við hana er Hofsstaðaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.