Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. maí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Ásvallabraut í Hafnarfirði

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Ásvallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásvallabraut í suðurátt, að Skarðshlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Ásvallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.