6. apríl 2018
6. apríl 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Ásbraut í Hafnarfirði
Brot 7 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.