Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. mars 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Ásbraut í Hafnarfirði

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.