Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. janúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Ásabraut í Garðabæ

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás. Á einni og hálfri klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.