Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Kópavogi

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 175 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.