Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. október 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Garðabæ

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 270 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.