Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. júní 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Garðabæ

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.