Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. desember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Garðabæ

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 283 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.