Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. ágúst 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Garðabæ

Brot 83 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 328 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.