Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Arnarhrauni í Hafnarfirði

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á milli Smyrlahrauns og Sléttahrauns. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.