5. júlí 2023
5. júlí 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Arnarhrauni í Hafnarfirði
Brot 3 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á móts við Arnarhraun 34. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.
Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.