Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. janúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álftanesvegi

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.