Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álftanesvegi

Brot 51 ökumanns var myndað á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, við Gálgahraunsveg. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 146 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sextán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.