Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júlí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álftanesvegi

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, við gamla Álftanesveg (Garðaholt). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 203 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.