25. nóvember 2016
25. nóvember 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Álftanesvegi
Brot 37 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.
Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.