Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. september 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álfhólsvegi í Kópavogi

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 78. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 78%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.