Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. apríl 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álfhólsvegi í Kópavogi

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 88. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.