Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álfhólsvegi í Kópavogi

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 75%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og krapaþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.