Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Álfaskeiði i Hafnarfirði

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.