Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. apríl 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Akrabraut í Garðabæ

Brot 61 ökumanns var myndað á Akrabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Akrabraut í vesturátt, að Hofakri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 62%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Akrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.