7. maí 2007
7. maí 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hópur Rúmena af landi brott
Hópur Rúmena heldur af landi brott í dag en fólkið hafði hvorki atvinnuleyfi né fjármuni til að framfleyta sér hérlendis. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af hópnum sem samanstendur af bæði körlum og konum og einu barni að auki. Tæplega helmingur hópsins kom til Íslands í gær en hinir hafa dvalið hér í nokkra daga. Fólkið fer héðan sjálfviljugt en hópurinn telur alls 21 einstakling.