Fara beint í efnið

25. apríl 2026

Hópslysaæfingin reyndi á góða samvinnu viðbragðsaðila

Hópslysaæfing fór fram laugardaginn 25. apríl 2026 á Bakkaflugvelli og Gunnarshólma í Rangárþingi. Markmið æfingarinnar var að bæta viðbragðsgetu og tryggja skilvirk samskipti milli þeirra aðila sem koma að björgunar- og neyðarstörfum á Suðurlandi.

Ljósmynd: Rúnar Freyr Gunnarsson

„Æfingin gekk ljómandi vel! Æfingin var ekki einföld, en þetta var gaman og reyndi svo sannarlega á teymisvinnu,” segir Þorsteinn Hoffritz aðalvarðstjóri sjúkraflutninga hjá HSU.

Í æfingunni var líkt eftir fjöldaslysi þar sem reynt var á viðbrögð, samskipti og ákvarðanatöku þátttakenda. Viðbragðsaðilar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Almannavörnum, Björgunarsveitum, Lögreglunni og Landhelgisgæslunni komu að æfingunni. Starfsfólk HSU voru um 20 talsins, þar af sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar og vakthafandi læknir í Rangárþingi auk leiðbeinanda í fyrstu hjálp. Allir þessir viðbragsðaðilar fengu tækifæri til að þjálfa samstarf sitt við krefjandi aðstæður.

Undirbúningur og framkvæmd æfingarinnar var í höndum reyndrar æfingastjórnar sem samanstóð af fulltrúum helstu viðbragðsaðila landsins. Þar á meðal voru tveir starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, sem komu að skipulagningu og stýringu æfingarinnar, þeir Hermann Marino Maggyarson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá HSU, og Þorsteinn Hoffritz.

Skipulagningin er búin að taka margar vikur og voru stjórnendur hópslysaæfingarinnar gríðarlega sátt með daginn. „Við skipuleggjendur og þau sem tóku þátt voru mjög sátt við dagsverkið. Þetta var bara ótrúlega flott allt saman og enn og aftur reyndi á góða samvinnu viðbragðsaðila á Suðurlandi,” segir Þorsteinn að lokum.