Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. desember 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hnífsstunga á Hverfisgötu – gæsluvarðhald til 18. desember

Piltur um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 18. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann er talinn hafa stungið mann með hnífi við Hverfisgötu í Reykjavík snemma í morgun. Árásarmaðurinn fór af vettvangi en var handtekinn nokkru síðar. Áverkar þolandans eru alvarlegir.