Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. mars 2026

Hlutverk Stafræns Íslands stækkar

Stafrænt Íslands hefur, í nánu samstarfi við fjölbreyttar stofnanir og landslið Íslands í hugbúnaðarþróun, náð miklum árangri í þróun notendavænna framendalausna sem nú nýtast almenningi á fjölbreyttan hátt.

Það stafræna umbreytingarverkefni byggir á níu kjarnalausnum sem eru áfram í stöðugri þróun og í hverjum mánuði bætast við nýir þjónustumöguleikar og tækifæri til að einfalda líf fólks. Þá hefur einnig verið unnið að því að gera gögn stofnana aðgengileg með öruggum gagnasamskiptum í gegnum gagnasamskiptalagið Strauminn.

Gagnastýring innan Stafræns Íslands

Mikil tækifæri liggja í betri nýtingu gagna hins opinbera. Hagnýting gagna gerir þjónustu og rekstur einfaldari, eykur yfirsýn og samstarf og gerir fólki kleift að vinna með nýjustu upplýsingar hverju sinni. Það leiðir til skýrari niðurstaðna, minni tvíverknaðar og meiri skilvirkni.

Árið 2025 var ákveðið að Stafrænt Ísland tæki virkara hlutverk á því sviði, meðal annars með ráðningu gagnastjóra sem nú leiðir verkefni sem miða að kortlagningu gagna ríkisins, þróun og innleiðingu tækni- og gæðaviðmiða og stuðlar að uppbyggingu sameiginlegra gagnainnviða líkt og gert hefur verið í framenda Ísland.is.

Stafrænt Ísland mun þó ekki reka og höndla öll gögn ríkisins, þau verða áfram á forræði stofnana en byggð með stöðluðum hætti á sameiginlegum gagnainnviðum.

Skipulag upplýsingatækni ríkisins

Mörg tækifæri liggja einnig í uppfærslu eldri kerfa og meiri stöðlun í bakenda og starfakerfum hins opinbera. Það er brýnt og umfangsmikið verkefni enda mörg kerfi og tækniuppbygging stofnana komin til ára sinna. Greining á stöðu upplýsingakerfa ríkisins leiddi í ljós að mörg grunnkerfi falla undir skilgreiningu arfleifðarkerfa en aukin samræming í tækniumhverfi ríkisins kallar á kortlagningu, þróun og innleiðingu sameiginlegra viðmiða þvert á stofnanir.

Nýtt hlutverk heildararkitekts upplýsingatækni (e. Enterprise Architect) mun skipta sköpum í því samvinnuverkefni en það starf verður mannað innan teymis Stafræns Íslands. Hlutverkinu er fyrst og fremst ætlað að kortleggja stöðu eldri kerfa, leggja mat á samlegð og þróa viðmið við uppfærslur og þróun kerfa.

Stafrænt Ísland mun þó sjá um rekstur og viðhald bakendakerfa stofnana ríkisins heldur vera í hlutverki leiðbeinandi samhæfingaraðila og sinna verkefnisstjórn.

Ný vídd í samstarfi

Lykilþáttur í árangursríkri þróun og nútímavæðingu opinberrar þjónustu er aukið samstarf og hæfniuppbygging. Verkefnastofa Stafræns Íslands er leiðandi í stafrænni umbreytingu á þjónustu en árangurinn byggir á traustu samstarfi, sameiginlegri sýn og stöðugri þróun.

„Með þessu aukna hlutverki er lagður enn sterkari grunnur að heildstæðri stafrænni stjórnsýslu þar sem þjónusta, gögn og innviðir vinna saman. Markmiðið er skýrt: að einfalda samskipti fólks og fyrirtækja við hið opinbera og tryggja að þjónustan þróist í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.