Fara beint í efnið

11. október 2022

Hlutdeildir í sandkola, sæbjúga og ígulkerum

Fiskistofa hefur lokið við hlutdeildarsetningu á sandkola, sæbjúga og ígulkerum, úthlutað þeim 20% af aflamarki sem haldið var eftir vegna hlutdeildarsetningarinnar, og opnað fyrir millifærslur á aflamarki og hlutdeildum í þessum tegundum.

madur net

Aðeins ein athugasemd barst við hlutdeildarsetninguna og var hún samþykkt. Sú athugasemd hafði þau áhrif að veiðireynsla fluttist á milli skipa og hafði því ekki áhrif á önnur skip. Áætlaðar hlutdeildir skipa sem sendar voru með bréfi á útgerðir 30. ágúst s.l. og settar inn á skipin haldast því óbreyttar.