15. ágúst 2022
15. ágúst 2022
Hlutdeildarsetning sæbjúga
Fiskistofa hefur lokið útreikningi á hlutdeildum í sæbjúga í samræmi við lög, nr. 64/2022 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006
Fiskistofa hefur lokið útreikningi á hlutdeildum í sæbjúga í samræmi við lög, nr. 64/2022 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja), sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní sl. er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum á skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021.
Í flipanum „Áætlaðar hlutdeildir skipa“ í meðfylgjandi excelskjali má sjá hlutdeildir skipa. Í viðbótarflipum eru þær grunnupplýsingar sem Fiskistofa byggir á við áætlun hlutdeilda þ.e. þær landanir sem teljast til veiðireynslu ásamt flutningi veiðireynslu milli skipa í samræmi við 3. gr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
Fiskistofa beinir því til útgerðaraðila skipa sem eru með veiðireynslu í sæbjúgum á viðmiðunartímabilinu að fara yfir löndunartölur, veiðireynsluflutninga og hlutdeilda útreikningana í meðfylgjandi skjali og senda inn athugasemdir á fiskistofa@fiskistofa.is. Einnig skal senda á sama netfang ef útgerðir óska eftir flutningi á veiðireynslu skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.