Fara beint í efnið

31. júlí 2024

Hlutdeildaflutningar á fiskveiðiárinu 2023/2024

Síðasti dagur til að senda inn beiðni um hlutdeildaflutning á fiskveiðiárinu er í dag, 31. júlí.

viti

Ef flutningur á að hafa áhrif á úthlutun aflamarks og krókaaflamarks á næsta fiskveiðiári þarf því að senda inn umsóknir ásamt fullnægjandi fylgigögnum í síðasta lagi í dag samkvæmt reglum 14. greinar reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.