4. júní 2024
4. júní 2024
Hjúkrunarheimilið Sundabúð
Fyrsta júní síðastliðinn varð hjúkrunarheimilið Sundabúð á Vopnafirði formlega hluti af Heilbrigðisstofnun Austurlands. Með þessari viðbót eru starfsstöðvar HSA orðnar 14. talsins. Í Sundabúð eru 11 hjúkrunarrými og starfsmenn u.þ.b. 20.
Við fögnum stækkuninni og bjóðum íbúa og starfsfólk Sundabúðar hjartanlega velkomið.