Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. maí 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hjón létust í slysi í Þjórsárdal.

Að kvöldi Hvítasunnudags kl. 20:53 barst Lögreglunni á Selfossi tilkynning um að hjón um sjötugt væru meðvitundarlaus í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal. Sjúkrabílar og lögregla fóru þegar á vettvang en nærstaddir brutust inn í húsið og komu þeim út undir bert loft og hófu þar tilraunir til endurlífgunar. Hjónin voru bæði úrskurðuð látin á vettvangi. Vísbendingar eru um að súrefnisskortur hafi orðið þeim að bana en málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og tæknideild Lögreglu höfuðborgarsvæðisins sem komin er á vettvang.

Ekki er unnt að birta nöfn hinna látnu að svo stöddu.