Fara beint í efnið

28. apríl 2026

Hjartað í HSU // Fréttapóstur HSU - Veturinn 2025-2026

Hjartað í HSU // Veturinn 2025-2026

Nú hefur verið gefið út 5. tölublaðið af fréttapósti Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, sem við köllum „Hjartað í HSU". Þessi vetrarútgáfa er safnútgáfa tíðinda HSU frá desember 2025 til mars 2026, sem við höfum birt á vef og samfélagsmiðlum okkar. Einnig er alltaf eitthvað um nýtt efni, sem seinna ratar á aðra miðla HSU.

Smelltu hér til að skoða Hjartað (PDF). Jafnframt er hægt að fletta gegnum myndir á samfélagsmiðlum HSU (til dæmis Facebook) til að skoða stakar blaðsíður (JPG).

Í pistli Díönu Óskarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, í þessari vetrarútgáfu Hjartans í HSU segir meðal annars:

,,Fyrstu mánuðir ársins hafa verið bæði viðburðaríkir og árangursríkir í starfsemi HSU. Það sem stendur upp úr er ekki aðeins fjöldi verkefna heldur hversu skýrt þau endurspegla þá stefnu sem við höfum nú sett okkur til ársins 2030. Þar leggjum við áherslu á framsækna þjónustu, eftirsóknarverðan vinnustað, sterka gæða- og öryggismenningu og ábyrgan rekstur.

Þessi stefna snýst alls ekki um orð á blaði eða skjá. Hún birtist í daglegu starfi, í ákvörðunum sem teknar eru nærri vettvangi og í þeim fjölbreyttu verkefnum sem starfsfólk HSU hefur leitt áfram síðustu mánuði. Í þessari vetrarútgáfu af Hjartanu í HSU förum við yfir verkefni okkar og starfsemi í desember, janúar, febrúar og mars.

Þjónusta sem mætir fólki þar sem það er

Áhersla okkar á framsækna þjónustu hefur skilað sér í áþreifanlegum breytingum. Heimaspítalinn er þar lykilþáttur og sýnir hvernig við getum fært þjónustuna nær sjúklingum, aukið sveigjanleika og bætt upplifun þeirra sem þurfa á henni að halda.

Samhliða þessu hefur verið unnið markvisst að þróun nýrra þjónustulausna þar sem framsækin tækni og ný nálgun spila sífellt stærra hlutverk. Verkefni á borð við fjarvöktun eru dæmi um hvernig við getum styrkt samfellu í þjónustu og brugðist fyrr við þörfum, án þess að auka álag á hefðbundnar þjónustueiningar.

Þróun og efling heilsugæslu á svæðinu, þar á meðal stóraukið aðgengi almennings í Uppsveitum að heilbrigðisþjónustu, undirstrikar einnig þessa sýn: Að þjónustan eigi, geti og sé aðgengileg, samræmd og byggð á þörfum samfélagsins hverju sinni.

Mannauðurinn drífur þróunina áfram

Farsæl starfsemi byggir á sterku og öflugu starfsfólki. Á síðustu mánuðum hefur orðið enn skýrara hversu mikill kraftur býr í mannauðnum okkar, ekki síst í þeim fjölmörgu umbótaverkefnum sem sprottið hafa innan frá.

Við höfum lagt aukna áherslu á vinnustaðamenningu þar sem samtal, traust og þátttaka eru í forgrunni. Það felur meðal annars í sér aukinn sýnileika verkefna, markvissari upplýsingamiðlun og fleiri tækifæri fyrir starfsfólk til að hafa bein áhrif og mynda sér skoðun á þróun starfseminnar.

Þessi nálgun styrkir ekki aðeins starfsánægju heldur eykur hún gæði þjónustunnar. Þegar fagfólk vinnur þvert á einingar og nýtir sameiginlega þekkingu skapast sterkari heild.

Gæði, öryggi og markviss þróun

Stofnun nýs fagráðs í upphafi árs 2026 var mikilvægt skref í átt að enn markvissari ákvarðanatöku og sterkari faglegum grunni. Með því erum við að efla samræmingu, styðja við þróun og tryggja að ákvarðanir byggi á bestu mögulegu þekkingu.

Á sama tíma hefur verið lögð rík áhersla á öryggi, bæði í klínísku starfi og í meðferð upplýsinga. Viðurkenning sem HSU hlaut fyrir árangur í netöryggismálum er skýr vísbending um að sú vinna er að skila árangri og styrkja traust.

Við sjáum einnig aukna áherslu á umbætur í innri ferlum þar sem sjálfvirknivæðing og betri nýting gagna styður við skilvirkni og gæði. Slík þróun er lykilforsenda þess að við getum haldið áfram að bæta þjónustuna á kerfisbundinn hátt.

Grænt ljós til framtíðar

Heilbrigðisþjónusta stendur frammi fyrir síbreytilegum áskorunum, ekki síst vegna fólksfjölgunar og breyttra þarfa samfélagsins. Það kallar á ábyrgan rekstur og skýra forgangsröðun.

Grænt ljós heilbrigðisyfirvalda gagnvart á viðamikilli uppbyggingu og endurbótum á húsnæði HSU á Selfossi er þar stór áfangi. Sú framkvæmd mun skapa betri aðstæður fyrir bæði starfsfólk og skjólstæðinga og er lykilforsenda þess að við getum mætt vaxandi eftirspurn fyrir þjónustu á svæðinu.

Samhliða því höfum við haldið áfram að styrkja innviði, þróa starfshætti og byggja upp þjónustu sem er betur í stakk búin til að mæta framtíðinni.

Horft fram á veginn

Þegar litið er yfir síðustu mánuði er ljóst að HSU er á skýrri vegferð. Verkefnin sem unnin hafa verið endurspegla metnað, fagmennsku og vilja til að þróa þjónustuna áfram. Við erum tæknilega þenkjandi heilbrigðisstofnun og leitum stöðugt tækifæra að beita tæknivæðingu og endurbættum verkferlum til að auka bæði framleiðni og skilvirkni til að létta starfsfólki lífið, auka öryggi skjólstæðinga okkar og bæta þjónustu hvar sem við getum.

Það er hverjum degi ljósara að tækifærin fram undan eru mörg. Með áframhaldandi samvinnu, skýrri stefnu og öflugum mannauði erum við vel í stakk búin til að takast á við þau og halda áfram að byggja upp heilbrigðisþjónustu sem samfélagið getur treyst.

Að lokum vil ég þakka starfsfólki HSU fyrir ómetanlegt framlag, samstarfsaðilum fyrir framúrskarandi samstarf og íbúum í þessu víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins fyrir traustið."

Díana Óskarsdóttir
forstjóri HSU